Skip to navigation | Skip to content

Lótushús - hugleiðsluskóli

hugleidslukaffi.jpgHugleiðsla hefur í gegnum aldirnar verið ein einfaldasta og áhrifaríkasta leiðin til að öðlast jákvæðara og kyrrara hugarástand. Raja yoga hugleiðslan sem kennd er í Lótushúsi  byggir á upplifun einstaklingsins á sínu innra sjálfi og eiginleikum. Hugleiðslan hjálpar okkur að læra að ríkja yfir eigin huga, öðlast sanna sjálfsvirðingu og virkja þá góðu eiginleika sem innra með okkur búa. Í heimi sívaxandi hraða og streitu, er fátt dýrmætara en að geta staldrað við í amstri dagsins, stigið út úr verkefnum sínum um stund og upplifað innri frið og styrk. Slík iðkun þarf ekki að taka langan tíma en getur skipt sköpum fyrir líðan okkar og árangur í lífi og starfi.

DadiSmallLótushús er miðstöð alþjóðlegu samtakanna Brahma Kumaris World Spiritual University á Íslandi. Í Lótushúsi eru haldin hugleiðslu- og hugræktarnámskeið með reglulegu millibili allan ársins hring. Öll námskeið og viðburðir á vegum skólans eru þátttakendum að kostnaðarlausu og er kostnaði mætt með frjálsum framlögum þeirra sem góðs hafa notið af starfsemi skólans.Akureyri

Hádegishugleiðsla

02/07/2009

Á fimmtudögum kl. 12:10-12:40. Allir velkomnir sem sótt hafa námskeið í Lótushúsi.

Jákvæð hugsun

06/07/2009

Nánari upplýsingar og skráning undir dagskrá.

Hugleiðsla - opinn tími

06/07/2009

Á mánudögum kl. 19:30-20:15. Allir velkomnir sem sótt hafa námskeið í Lótushúsi.

Framhaldsnámskeið í Raja Yoga

07/07/2009

Fyrir þá sem hafa lokið grunnnámskeiðinu í Raja Yoga. Sjá nánar undir Dagskrá.

Raja Yoga hugleiðslunámskeið

16/07/2009

Nánari upplýsingar og skráning undir dagskrá.

Heimshugleiðsla

19/07/2009

Þriðja sunnudag í hverjum mánuði kl. 18:30-19:30. Allir velkomnir sem sótt hafa námskeið í Lótushúsi.