Worldwide

Upplifðu hugleiðslu

Hérna eru nokkrar hugleiðslur sem geta hjálpað þér að byrja.

Líkt og önnur færni, krefst hugleiðsla iðkunar eigi góður árangur að nást. Sífellt fleiri gera einhvers konar hugleiðslu að daglegri venju í lífi sínu og nýta hana sem kröftugt mótefni gegn streitu eða sem einfalda slökunaraðferð. Með því að hugleiða stutta stund á hverjum degi verður hugleiðslan fljótt að eðlilegri og auðveldri venju sem launar margfalt til baka alla viðleitni þína.

Þú kemst mun lengra á innra ferðalagi þínu ef þú lærir hugleiðslu á grunnnámskeiðinu okkar í Raja Yoga hugleiðslu sem þú getur sótt þér að kostnaðarlausu. Þessi tegund hugleiðslu byggir á skilningi um hinn gífurlega kraft hugans. Ef þú ert ekki viss um að hugleiðsla sé eitthvað fyrir þig en myndir vilja skilja betur þinn eigin huga, öðlast skýrari hugsun og læra að ríkja yfir hugsunum þínum, þá er námskeiðið Jákvæð hugsun eitthvað fyrir þig.