Gæfukort
36 gullkorn fyrir sálina
Innra með hverju og einu okkar leynist fjársjóður jákvæðra og fagurra eiginleika. Suma af þeim erum við meðvituð um en aðrir bíða þess að verða uppgötvaðir. Í hvert sinn sem við leiðum hugann að því jákvæðasta innra með okkur og öðrum, eykst það og verður smám saman ríkjandi í lífi okkar, okkur sjálfum og öðrum til mikillar gæfu.
Verð: 1.800 kr.
Austræn hugsun fyrir vestrænan huga
– handbók í listinni að hugleiða
Höfundur: Anthony Strano
Í þessari hvetjandi og innblásnu bók, brúar Anthony Strano bilið milli austurs og vesturs á skýran og skilmerkilegan hátt. Bókin er einstakur leiðarvísir á ferðalaginu til sjálfsþekkingar og gagnast hverjum þeim sem vill byggja sig upp innanfrá.
Verð: 1.700 kr
Friðargjöf
Höfundur: Enrique Simó
Friðargjöf hefur að geyma samansafn af hugleiðingum um frið sem geta hjálpað lesandanum að byggja upp innri frið í heimi sívaxandi ólgu. Friðargjöf er dýrmæt gjöf sem á brýnt erindi til allra í dag. Þessi litla fallega bók hefur verið þýdd á fjölmörg tungumál og haft mikil áhrif á þá sem hafa lesið hana.
Verð: 1.000 kr
Eitt augnablik
Höfundur: Garfield King
Eitt augnablik hjálpar lesandanum að staldra við í erli dagsins og leiða hugann að því sem raunverulega skiptir máli í lífinu. Með einni hugsun geturðu flogið frjáls og fundið nýjar lausnir á ferðalagi lífsins til sjálfsþekkingar - það tekur aðeins eitt augnablik...
Verð: 1.500 kr
Hugleiðslur - geisladiskur
Geisladiskur með leiddum Raja Yoga hugleiðslum og tónlist. Diskurinn er tilvalinn fyrir þá sem hafa tekið grunnnámskeið í Raja Yoga en gagnast einnig öllum þeim sem vilja komast nær sínum innsta kjarna og tengjast Uppsprettunni.
Verð: 1.500 kr
Om shanti - hugleiðslur fyrir byrjendur
Á geisladiskinum eru fjölbreyttar hugleiðslur sem gagnast einkum þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í hugleiðsluiðkun. Á diskinum eru m.a. morgunhugleiðsla, kvöldhugleiðsla og slökunarhugleiðsla.
Verð: 1.500 kr



